Sumarfrí …
Dagarnir alveg hlaupa frá manni… Hef nú ekki verið dugleg að koma hingað inn en hver veit nema það breytist. Þetta góða ár 2009 var alltof fljótt að líða, en ekki hefur maður gert mikið annað en að vinna, sofa og borða.
Við Siggi komumst í sumarfrí núna í enda mai, sem var ansi ljúft. Brunuðum bara Norður á land og ákváðum að vera hérna í nokkra daga, sem er bara magnað því að veðrið er búið að vera æðislegt. Við Björgvin búin að vera ógeðslega dugleg að fara í sund, nema í dag þá fannst mér ekki nógu gott veður og var búin að samþykja bíóferð með Birki mínum þegar ég sá sólina loksins brjóta sér leið í gegnum skýin. En við Eygló, Sævar og Björgvin skellum okkur bara í sund á morgun í staðinn.
En þið sem lesið þetta vitið þó allavega af okkur hér á Akureyrinni, ef ykkur langar til að heilsa uppá okkur… : )
Flokkun: Akureyri.