Apríl 2009
Góða kvöldið hérna….
Ansi langt síðan maður hefur skrifað eitthvað hérna, þannig mér fannst alveg við hæfi að henda inn einu stuttu bloggi eða svo. Árið er bara búið að leggjast ágætlega í okkur hérna í Fífuselinu. En í Mars þá tókum við við lánunum af íbúðinni og erum stolltir íbúðar eigendur núna. Erum búin að gera allt virkilega kósý hjá okkur og þykir mér virkilega gaman að sjá hversu margir eru búnir að koma í heimsókn af fólki sem ég hef ekki séð í 100 ár eða hér um bil.
Erum búin að þvælast svoldið á norðurlandið, enda verður maður að kíkja á fjölskylduna annað slagið, nóg að gerast þar. Björgvinn stækkar og stækkar og er farinn að standa sjálfur upp. En hann er náttlega ekki orðin nógu gamall til að fara labba en það er án gríns spurning hvenær hann tekur uppá því. Birkir kallinn minn er svakalega duglegur í skólanum, en þó svo að hann sé duglegur þar þá finnst honum ekkert skemmtilegra en að leika sér úti… Hann fór til augnlæknis um daginn og er kominn með gleraugu sem hann þarf að ganga alltaf með. Stelpurnar tvær eru nú bara eins klikkaðar og hægt er að halda! Eygló að brillera í MA og Harpa á fullu í skólanum. Reyndar fór Harpa líka til augnlæknis um daginn og er líka komin með gleraugu. Vona að þetta sé ekki að ganga !
En eins og ég segi þá er ekki mikið að frétta af okkur Sigga! Fórum reyndar í vetrarfrí fyrir páska og vorum þar í viku, var alveg æðislegt að sleppa úr borginni í smá tíma. En enþá æðislegra að koma heim aftur. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili … Hafið það gott

Flokkun: Óflokkað