Jólaskap :D
Í þessum mánuði er ég búin að hafa alveg nóg að gera. Vinnann á stórann þátt í því, en ég er að fara í frí núna á þriðjudaginn eftir vinnu og fer ekki að vinna aftur fyrr en 30 desember. Ætla ég að njóta jólanna heima hjá múttu. Veit það vel að konan á eftir að elda einhvern góðann mat handa mér og dekra aðeins við stelpuna sína.
En annars þá er ég búin á námskeiðinu sem ég var á! Það er ansi ljúft að vera búin með það loksins þó svo að það hafi nú alveg verið ágætt að vera þarna … Frábært fólk sem var á því líka, maður á vonandi eftir að rekast á það einhverntímann aftur. Allavega þá er ég laus við námskeið í bili. Það er spurning hvort að maður fari á nr2 … en það hækkar launin mín enþá meira, sem er virkilega fínt en það byrjar ekki fyrr en 16 febrúar á næsta ári.
Jólainnkaupin eru búin hjá mér líka : ) enþá sáttari við það, náði að klára það dæmi í síðustu viku, náði meira að segja að pakka öllu inn sama dag. Búin að vera ansi dugleg í þessum mánuði við að setja upp jólaseríur og jólagardínur. Orðið ekkert smá sætt hérna hjá okkur.
En það nýjasta sem er að frétta af okkur er það að við erum loksins komin með sófa… Sem er æði, stofan er ekki lengur “sálarlaus” En hann Siggi minn var alveg hörku duglegur á meðan ég var að vinna í dag og náði í þetta allt saman til frænda síns og var búin að koma þessu öllu voðalega vel fyrir þegar ég kom heim.
Veit nú ekki hvort ég eigi að hafa þetta mikið lengra, en þetta er allavega eitthvað um það sem er í gangi í mínu lífi eins og er
Hafið það gott yfir jólin og áramótin … ég veit að ég ætla að gera það
Kossar og knús
Flokkun: Óflokkað