Jamm og jæja … !
Sunnudagur 30. nóvember 2008 - Kolbrún Eva
Jólahlaðborð á Argentínu !
Síðasta þriðjudag þá skellti vinnan sér á magnað jólahlaðborð á Argentínu. Maturinn þar var alveg æðislegur og það var allt orðið svo jólalegt þar. En já við vorum 12 saman sem fórum og nutum matarins. Þjóninn sem var með vínið reyndi að skemmta okkur líka en við skemmtum okkur svo vel fyrir þannig. http://www.argentina.is/template21086.asp?pageid=2596 kíkið þið á þetta og sjáið hvað þetta er flott hjá þeim.
En annars er voða lítið að frétta af okkur. Erum bara búin að vera í rólegheitunum að slappa af þegar það er tími. Búið að vera nóg að gera í vinnunum hjá okkur.
Vildi bara láta vita að ég væri á lífi… Hafið það gott !
Flokkun: Óflokkað