Langt um liðið … :p
Fimmtudagur 9. október 2008 - Kolbrún Eva
Jæja, það má segja að það sé langt síðan ég skrifaði eitthvað hérna. En þessa dagana er maður svo upptekin á Facebook að það er nánast ekkert annað sem maður skoðar á netinu. Enda er ég búin að vera taka smá rispu á OTH.
Margt er búið að gerast á þessum tíma. S.s.
- Veikindi.
- Akureyri.
- Haustferð hjá Þjóðskrá.
- Vinna .
- Þegar við komum heim frá París, þá endaði ég í rúminu næstu daga á eftir, var í rusli með kvef, hálsbólgu, hausverk. Þannig á meðan ég var að rífa mig í gegnum veikindinn átti ég marga dvd daga, gerði lítið sem ekkert nema horfa á myndir og spila Póker fram á nótt. En núna 3 vikum seinna þá held ég að ég sá loksins laus við flensuna. Náði ég þó að smita þónokkra í millitíðini. Vakti ekki mikla lukku.
- Við Siggi skutumst norður helgina eftir París. Heilsuðum aðeins uppá ömmu og afa í leiðini, fanst voða notalegt að koma til þeirra, langt síðan ég hef hitt þau og voru þau bara mjög ánægð með heimsóknina
Það var ansi gott að koma til mömmu, hitta litlu strákana mína og stelpurnar sem ég sá nú ekki mikið af. En á laugardeginum var ég með henni Hrönn minni. Var búin að sakna hennar svo mikið og það var æðislegt að setjast niður með henni og fá sér í glas. Þetta kvöld var sérstakt, en gott áður en við fórum niðrí bæ fannst mér. Sunnudagurinn minn var erfiður og var ferðin til Rvk ekki góð. Hausinn var ekki á mér og var ég alveg til í að vera bara undir sæng. En Akureyrarferðir verða nú ekki margar á næstunni þannig það er eins gott að njóta þess að koma þangað á annað borð
- Síðustu helgi þá var haustferðin hjá Þjóðskrá, og var farið á Hótel Flúði. Lögðum frekar seint af stað úr bænum en náðum þó að koma á réttum tíma áður en rútan færi af stað. Rútubílstjórinn var Pólverji sem skildi ekki orð í íslensku og var fólk frekar hrætt um tíma þar sem hann var ekki alveg viss hvert að hann væri að fara. Kíktum á kirkju sem var rétt hjá Flúðum, svaka saga þar á bakvið en þar sem ég er með skammtíma minni þá held ég að það sé ekkert sniðugt að segja þá sögu hérna. Margt var skoðað eftir það. Fórum svo aftur til baka á Hótelið og blandaði ég mér smá Gin og Tónik en var samt ekki í miklu partý stuði. Hálf 8 var haldið af stað í frábærann mat. Allir mjög ánægðir og sáttir. Þetta kvöld var mikið hlegið og skemmt sér var ég bara nokkuð ánægð með mig, héllt mér bara við vatnið og var jú spurð 3 þetta kvöld hvort ég væri ólétt. Hahaha… Fór bara snemma að sofa, vaknaði fersk , fórum í bæinn og kíktum á smá þynnku mat fyrir aðra en mig :p Kvöldið okkar fór svo í 2 seinustu Lord of the Rings myndirnar. En hann Siggi á lengri útgáfu af þeim og tók það okkur 8 tíma að horfa á 2 fkn myndir.
- Svo er það vinnann, það er alveg nóg að gera þar, en í gær þá fengu allir innflúensu sprautu þannig það má búast við einhverjum veikindum og nóg af aukavöktum.En þar sem ég er í 100 % vinnu þá nenni ég nú ekki að vera taka mikið af aukavöktum. En núna 20 okt þá er ég að fara byrja á námskeiði sem á víst að hækka launin mín þannig það er gott
Ekki skaðar það að það er á vinnutíma.
En ég held að ég hafi ekki mikið meira að segja í bili held að þetta sé bara alveg ágætt hjá mér. Ég ætla að fara halda áfram að horfa á OTH og hugsa um bankamálinn eins og allir aðrir Íslendingar í dag. Efa samt sem áður að þeir séu að horfa á OTH en hver veit
Hafið það gott þangað til næst
Flokkun: Óflokkað