Allt milli himins og jarðar, og meira til!

Sumarfrí …

Sunnudagur 6. júní 2010 - Kolbrún Eva

Dagarnir alveg hlaupa frá manni… Hef nú ekki verið dugleg að koma hingað inn en hver veit nema það breytist.  Þetta góða ár 2009 var alltof fljótt að líða, en ekki hefur maður gert mikið annað en að vinna, sofa og borða.

Við Siggi komumst í sumarfrí núna í enda mai, sem var ansi ljúft. Brunuðum bara Norður á land og ákváðum að vera hérna í nokkra daga, sem er bara magnað því að veðrið er búið að vera æðislegt. Við Björgvin búin að vera ógeðslega dugleg að fara í sund, nema í dag þá fannst mér ekki nógu gott veður og var búin að samþykja bíóferð með Birki mínum þegar ég sá sólina loksins brjóta sér leið í gegnum skýin. En við Eygló, Sævar og Björgvin skellum okkur bara í sund á morgun í staðinn.

En þið sem lesið þetta vitið þó allavega af okkur hér á Akureyrinni, ef ykkur langar til að heilsa uppá okkur… : )

Flokkun: Akureyri. | Þessi færsla hefur verið lesin 1,257 sinni | Engar athugasemdir »

Apríl 2009

Fimmtudagur 23. apríl 2009 - Kolbrún Eva

Góða kvöldið hérna….

Ansi langt síðan maður hefur skrifað eitthvað hérna, þannig mér fannst alveg við hæfi að henda inn einu stuttu bloggi eða svo.  Árið er bara búið að leggjast ágætlega í okkur hérna í Fífuselinu. En í Mars þá tókum við við lánunum af íbúðinni og erum stolltir íbúðar eigendur núna.  Erum búin að gera allt virkilega kósý hjá okkur og þykir mér virkilega gaman að sjá hversu margir eru búnir að koma í heimsókn af fólki sem ég hef ekki séð í 100 ár eða hér um bil.

Erum búin að þvælast svoldið á norðurlandið, enda verður maður að kíkja á fjölskylduna annað slagið, nóg að gerast þar. Björgvinn stækkar og stækkar og er farinn að standa sjálfur upp. En hann er náttlega ekki orðin nógu gamall til að fara labba en það er án gríns spurning hvenær hann tekur uppá því. Birkir kallinn minn er svakalega duglegur í skólanum, en þó svo að hann sé duglegur þar þá finnst honum ekkert skemmtilegra en að leika sér úti… Hann fór til augnlæknis um daginn og er kominn með gleraugu sem hann þarf að ganga alltaf með. Stelpurnar tvær eru nú bara eins klikkaðar og hægt er að halda! Eygló að brillera í MA  og Harpa á fullu í skólanum. Reyndar fór Harpa líka til augnlæknis um daginn og er líka komin með gleraugu. Vona að þetta sé ekki að ganga !

En eins og ég segi þá er ekki mikið að frétta af okkur Sigga!   Fórum reyndar í vetrarfrí fyrir páska og vorum þar í viku, var alveg æðislegt að sleppa úr borginni í smá tíma. En enþá æðislegra að koma heim aftur.  En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili … Hafið það gott :D

Flokkun: Óflokkað | Þessi færsla hefur verið lesin 4,088 sinnum | Engar athugasemdir »

Jólaskap :D

Sunnudagur 21. desember 2008 - Kolbrún Eva

Í þessum mánuði er ég búin að hafa alveg nóg að gera.  Vinnann á stórann þátt í því, en ég er að fara í frí núna á þriðjudaginn eftir vinnu og fer ekki að vinna aftur fyrr en 30 desember. Ætla ég að njóta jólanna heima hjá múttu. Veit það vel að konan á eftir að elda einhvern góðann mat handa mér og dekra aðeins við stelpuna sína. :D

En annars þá er ég búin á námskeiðinu sem ég var á! Það er ansi ljúft að vera búin með það loksins þó svo að það hafi nú alveg verið ágætt að vera þarna … Frábært fólk sem var á því líka, maður á vonandi eftir að rekast á það einhverntímann aftur. Allavega þá er ég laus við námskeið í bili. Það er spurning hvort að maður fari á nr2 … en það hækkar launin mín enþá meira, sem er virkilega fínt en það byrjar ekki fyrr en 16 febrúar á næsta ári.

Jólainnkaupin eru búin hjá mér líka : ) enþá sáttari við það, náði að klára það dæmi í síðustu viku, náði meira að segja að pakka öllu inn sama dag.  Búin að vera ansi dugleg í þessum mánuði við að setja upp jólaseríur og jólagardínur. Orðið ekkert smá sætt hérna hjá okkur.

En það nýjasta sem er að frétta af okkur er það að við erum loksins komin með sófa… Sem er æði, stofan er ekki lengur “sálarlaus” En hann Siggi minn var alveg hörku duglegur á meðan ég var að vinna í dag og náði í þetta allt saman til frænda síns og var búin að koma þessu öllu voðalega vel fyrir þegar ég kom heim.

Veit nú ekki hvort ég eigi að hafa þetta mikið lengra, en þetta er allavega eitthvað um það sem er í gangi í mínu lífi eins og er :D   Hafið það gott yfir jólin og áramótin … ég veit að ég ætla að gera það :D Kossar og knús :D

Flokkun: Óflokkað | Þessi færsla hefur verið lesin 1,850 sinni | Engar athugasemdir »

Jamm og jæja … !

Sunnudagur 30. nóvember 2008 - Kolbrún Eva

Jólahlaðborð á Argentínu !

Síðasta þriðjudag þá skellti vinnan sér á magnað jólahlaðborð á Argentínu. Maturinn þar var alveg æðislegur og það var allt orðið svo jólalegt þar.  En já við vorum 12 saman sem fórum og nutum matarins. Þjóninn sem var með vínið reyndi að skemmta okkur líka en við skemmtum okkur svo vel fyrir þannig.   http://www.argentina.is/template21086.asp?pageid=2596 kíkið þið á þetta og sjáið hvað þetta er flott hjá þeim.

En annars er voða lítið að frétta af okkur. Erum bara búin að vera í rólegheitunum að slappa af þegar það er tími. Búið að vera nóg að gera í vinnunum hjá okkur.

Vildi bara láta vita að ég væri á lífi… Hafið það gott !

Flokkun: Óflokkað | Þessi færsla hefur verið lesin 611 sinni | Engar athugasemdir »

Langt um liðið … :p

Fimmtudagur 9. október 2008 - Kolbrún Eva

Jæja, það má segja að það sé langt síðan ég skrifaði eitthvað hérna. En þessa dagana er maður svo upptekin á Facebook að það er nánast ekkert annað sem maður skoðar á netinu. Enda er ég búin að vera taka smá rispu á OTH.

Margt er búið að gerast á þessum tíma. S.s.

  1. Veikindi.
  2. Akureyri.
  3. Haustferð hjá Þjóðskrá.
  4. Vinna .

  1. Þegar við komum heim frá París, þá endaði ég í rúminu næstu daga á eftir, var í rusli með kvef, hálsbólgu, hausverk. Þannig á meðan ég var að rífa mig í gegnum veikindinn átti ég marga dvd daga, gerði lítið sem ekkert nema horfa á myndir og spila Póker fram á nótt. En núna 3 vikum seinna þá held ég að ég sá loksins laus við flensuna. Náði ég þó að smita þónokkra í millitíðini. Vakti ekki mikla lukku.
  2. Við Siggi skutumst norður helgina eftir París. Heilsuðum aðeins uppá ömmu og afa í leiðini, fanst voða notalegt að koma til þeirra, langt síðan ég hef hitt þau og voru þau bara mjög ánægð með heimsóknina :D Það var ansi gott að koma til mömmu, hitta litlu strákana mína og stelpurnar sem ég sá nú ekki mikið af. En á laugardeginum var ég með henni Hrönn minni. Var búin að sakna hennar svo mikið og það var æðislegt að setjast niður með henni og fá sér í glas. Þetta kvöld var sérstakt, en gott áður en við fórum niðrí bæ fannst mér. Sunnudagurinn minn var erfiður og var ferðin til Rvk ekki góð. Hausinn var ekki á mér og var ég alveg til í að vera bara undir sæng. En Akureyrarferðir verða nú ekki margar á næstunni þannig það er eins gott að njóta þess að koma þangað á annað borð :D
  3. Síðustu helgi þá var haustferðin hjá Þjóðskrá, og var farið á Hótel Flúði. Lögðum frekar seint af stað úr bænum en náðum þó að koma á réttum tíma áður en rútan færi af stað. Rútubílstjórinn var Pólverji sem skildi ekki orð í íslensku og var fólk frekar hrætt um tíma þar sem hann var ekki alveg viss hvert að hann væri að fara. Kíktum á kirkju sem var rétt hjá Flúðum, svaka saga þar á bakvið en þar sem ég er með skammtíma minni þá held ég að það sé ekkert sniðugt að segja þá sögu hérna. Margt var skoðað eftir það. Fórum svo aftur til baka á Hótelið og blandaði ég mér smá Gin og Tónik en var samt ekki í miklu partý stuði. Hálf 8 var haldið af stað í frábærann mat. Allir mjög ánægðir og sáttir. Þetta kvöld var mikið hlegið og skemmt sér var ég bara nokkuð ánægð með mig, héllt mér bara við vatnið og var jú spurð 3 þetta kvöld hvort ég væri ólétt. Hahaha… Fór bara snemma að sofa, vaknaði fersk , fórum í bæinn og kíktum á smá þynnku mat fyrir aðra en mig :p Kvöldið okkar fór svo í 2 seinustu Lord of the Rings myndirnar. En hann Siggi á lengri útgáfu af þeim og tók það okkur 8 tíma að horfa á 2 fkn myndir.
  4. Svo er það vinnann, það er alveg nóg að gera þar, en í gær þá fengu allir innflúensu sprautu þannig það má búast við einhverjum veikindum og nóg af aukavöktum.En þar sem ég er í 100 % vinnu þá nenni ég nú ekki að vera taka mikið af aukavöktum. En núna 20 okt þá er ég að fara byrja á námskeiði sem á víst að hækka launin mín þannig það er gott :D Ekki skaðar það að það er á vinnutíma.

En ég held að ég hafi ekki mikið meira að segja í bili held að þetta sé bara alveg ágætt hjá mér. Ég ætla að fara halda áfram að horfa á OTH og hugsa um bankamálinn eins og allir aðrir Íslendingar í dag. Efa samt sem áður að þeir séu að horfa á OTH en hver veit :P Hafið það gott þangað til næst :D

Flokkun: Óflokkað | Þessi færsla hefur verið lesin 831 sinni | Engar athugasemdir »